Afgreiðslutími Tertugallerísins um jól og áramót

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann


Afgreiðslutími og pöntunarfrestur Tertugallerísins verður með öðrum hætti um jól og áramót. Lokað er á aðfangadag, jóladag og annan í jólum. Hefðbundinn afgreiðslutími verður á milli jóla og nýárs, þ.e.a.s. frá föstudeginum 27. desember til 30. desember.

Lokað verður hjá okkur á gamlársdag og nýársdag og munum við opna aftur með hefðbundnum hætti á fimmtudeginum 2. janúar 2020.

Pantaðu tímanlega

Allar veitingarnar frá Tertugalleríinu eru afgreiddar ferskar. Afgreiðslufrestur undir venjulegum kringumstæðum er 2-3 sólarhringar. Hafa ber í huga að afgreiðslufresturinn getur lengst með skömmum fyrirvara og lokast fyrir þá daga í pöntunardagatalinu. Þegar gengið er frá pöntun þarf að velja á hvaða klst. er sótt til okkar í Tertugalleríið í Skeifuna 19.

Til að fá vöruna afhenta á laugardegi eða sunnudegi þarf að panta í síðasta lagi fyrir klukkan 16:00 á fimmtudegi, með fyrirvara um að ekki sé búið að loka fyrir pantanir.

 

 

Hafa ber í huga eftirfarandi:

*Til að fá afhenta vöru á þorláksmessu þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl.14 fimmtudaginn 19. desember.

**Til að fá afhenta vöru föstudaginn 27. desember þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl.14 föstudaginn 20. desember.

***Til að fá afhenta vöru laugardaginn 28. desember og sunnudaginn 29. desember þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl.12 á þorláksmessu.

****Til að fá afhenta vöru mánudaginn 30. desember og fimmtudaginn 2. janúar þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl.12 föstudaginn 27. desember

 

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →