NÝJUNG frá Tertugalleríinu - Gulrótar- og Skúffubitar!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

 

Við hjá Tertugalleríinu kynnum enn eina nýjungina í vöruúrvali okkar! Dásamlega ljúffenga Gulrótar- og Skúffubita. Litlu Gulrótar- og Skúffubitarnir eru 40 saman í kassa og henta einstaklega vel í ferminguna, útskriftina, afmælið eða í saumaklúbbinn.

Gulrótarbitarnir eru einstaklega bragðgóðir með þykkum gulrótartertubotn, gómsætu rjómaostakremi og appelsínugulum súkkulaðispónum.
Skúffubitarnir eru með þykkum, mjúkum og bragðgóðum botni, dökku kremi og súkkulaðiskrauti.

Auðveldaðu þér fyrirhöfnina fyrir veisluna og pantaðu veitingarnar frá Tertugalleríinu. Í ár erum við með sérstakt fermingartilboð sem gildir til 30. maí 2019. Hafa ber í huga að leggja þarf inn pöntun innan þessa tímamarka til að nýta sér afsláttinn en hægt er að panta lengra fram í tímann. Skoðaðu fermingartilboðið nánar hér!

Pantaðu tímanlega
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar. Ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.
Athugaðu að afgreiðslufrestur getur lengst verulega á þessu tímabili. Tertugalleríið áskilur sér rétt til að loka fyrir pantanir ef fyrirliggur að eftirspurn verði ekki annað. Tryggðu þér tertu í tíma. Pantaðu tímanlega.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →