Erfidrykkja

Það er einfælt og þægilegt að panta bakkelsi fyrir erfidrykkjuna hjá Tertugalleríinu

Það er góð og falleg hefð að safnast saman eftir að ástvinur hefur verið kvaddur, og minnast hans á léttum nótum með kaffisamsæti. Þar geta fjölskylda og vinir, gamlir og nýir, hist og rifjað upp góðar minningar. Tertugalleríið býður upp á ljúffengar og glæsilegar tertur fyrir erfidrykkju. Skoðaðu úrvalið og veldu tertur sem henta. Einfalt að panta.