Afmælisdagurinn er besti dagur ársins

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

 

Allir vita hve gaman er að fagna afmæli sínu. Afmælisdagurinn er einn fárra daga á árinu þar sem allt snýst um afmælisbarnið og þá leyfist flest. Fátt er betra en að gæða sér á ljúffengri afmælisköku á slíkum merkisdögum.

Þó mörgum finnst gaman að baka og stússast í eldhúsinu er kærkomið að geta sett verkin í hendur fagmanna. Hvort sem fagna á stórafmæli í stórum hópi fólks eða halda veislu í litlum hópi er terta frá Tertugalleríinu tilvalin á veisluborðið.

Terturnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar. Helstu hindranirnar eru ímyndunaraflið en viðskiptavinir eru óhræddir við að segja frá hugmyndum sínum. Við hjálpum þeim síðan við að útfæra tertuna.

Mörgum börnum þykir gaman að afmælistertum með myndum á sem þau hafa sjálf valið. Það er lítið mál að útfæra slíka tertu. Það eina sem þið þurfið að gera er að velja Afmælistertu með nammi og mynd og senda okkur þá mynd á vefsíðunni okkar sem barnið ykkar hefur valið til að setja á tertuna. Við prentum myndina síðan á sykurmassa sem gerir afmælistertuna afar gómsæta og mjög krakkavæna.

Við getum líka skrifað texta á tertuna sem er eftir þínu höfði.

Pantið með fyrirvara
Þegar þið pantið tertu hjá okkur þá er mikilvægt að panta með fyrirvara. Undir venjulegum kringumstæðum þarf að panta 2-3 dögum áður en áætlað er að sækja tertuna. Afgreiðslutíminn getur svo orðið lengi á álagstímum.

Verði ykkur að góðu!


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →