Njótið verslunarmannahelgarinnar með smástykkjum frá Tertugalleríinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Verslunarmannahelgin er stærsta ferðahelgi ársins og í ár er hún dagana 4-7 ágúst. Verslunarmannahelgin er tilkomin út frá frídegi verslunarmanna og var sá dagur fyrst haldinn fyrir rúmum 120 árum, nánar tiltekið 13. september árið 1894. Það var Verzlunarmannafélag Reykjavíkur (VR) sem átti frumkvæði að því að veita starfsfólki í verslunum frí þennan dag. VR samþykkti að skipuleggja daginn svo hann yrði nýttur eins og til hans var stofnað.

Þótt verslunarmannahelgin sé komin þá er mikilvægt að gleyma ekki að gera vel við sig og næla sér í smástykki frá Tertugalleríinu til að bjóða upp á með kaffinu í sumarbústaðnum eða til að eiga fyrir utan tjaldið á Þjóðhátíð. Smástykkin frá Tertugalleríinu eru líka einstaklega hentug að hafa með í ferðalaginu.

Ekki heldur má gleyma að minnast á sælkerasalötin okkar sem koma í handhægum 1 kg. umbúðum og er hægt að velja um skinku-, túnfisk- eða rækjusalat. Þau eru tilvalin fyrir samlokuna, með rúnstykki, allskonar kexi, hrökkbrauði eða hreinlega með fersku niðurskornu grænmeti til að dýfa í.

Þú getur skoðað úrvalið af okkur ljúffengum tertum og öðrum veisluveigum hér!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir útskriftarveislur. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þið skoðið úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →