Veisluveigar fyrir sauma- eða bókaklúbbinn þinn

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Í mörgum sauma- eða bókaklúbbum er hefð fyrir því að gera vel við sig þegar verið er að hittast. Við hjá Tertugalleríinu eigum mikið úrval af veisluveigum sem hentar öllum tilefnum.

Sumir af saumaklúbbunum hafa verið starfræktir síðan meðlimir þeirra sátu á menntaskólabekk og því ljóst að ýmislegt hefur drifið á daga þeirra sem eru í þeim saumaklúbbum. Bókaklúbbarnir eru nýrri af nálinni en eru sífellt að njóta meiri vinsælda. Meðlimir lesa bók hver í sínu horni og hittast svo til að ræða um efni bókarinnar, söguþráð og hvað hún skilur eftir sig. Sitt sýnist hverjum eins og gengur og líflegar umræður geta myndast.

Marengsbombur

Eins og flestir vita eru oft girnilegar sælkerakræsingar á boðstólum og oftar en ekki ómissandi þáttur þegar klúbbarnir hittast og við hjá Tertugalleríinu vitum hvað sælkerar vilja.

Marengsterturnar okkar eru sérstaklega fyrir þá sælkera sem elska stökka áferð sem bráðnar í munni og veitir sælutilfinningu. Við bjóðum upp á þrjár mismunandi bragðtegundir af marengsbombum, hver annarri ljúffengari.

Marengsbomban okkar er einstaklega falleg púðursykurmarengsterta með rjómafyllingu. Skreytt með marengsbitum, karamellu, súkkulaði og ferskum berjum. Marengsbomban fæst í 15 og 30 manna stærðum.

Hrísmarengsbomban okkar er 15 manna bomba úr tveimur lögum af púðursykursmarengs með hrískúlum og vanillurjóma með kokteilávöxtum á milli. Hrísmarengsbomban er síðan hjúpuð með rjómasúkkulaðiganas og toppuð með Nóa kroppi. 

Banana- og kókosbomban er 15 manna marengsveisla. Þessi ljúffenga terta er í senn stökk og mjúk. Mýktin kemur úr kókossvampbotni með súkkulaði, rjóma og banönum meðan stökki hlutinn inniheldur mulinn púðursykursmarengs með súkkulaðiganas.

Leyfðu okkur hjá Tertugalleríinu að einfalda þér fyrirhöfnina. Kynntu þér úrvalið af tertum ásamt öðrum veisluveigum og pantaðu eitthvað ljúffengt til að hafa á boðstólum næst þegar þú heldur sauma- eða bókaklúbbskvöld. Skoðaðu úrvalið hér!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir útskriftarveislur. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þið skoðið úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef pöntun er einhverja hluta vegna ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →